Fréttatilkynning um Fjarmenntaskólann

Sjö framhaldsskólar á landsbyggðinni hafa ákveðið að bjóða sameiginlega upp á fjarnám með áherslu á starfsnám. Um er að ræða Fjörbrautaskóla Snæfellinga, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Menntaskólann á Tröllaskaga, Framhaldsskólann á Húsavík, Menntaskólann á Egilsstöðum, Verkmenntaskóla Austurlands og Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu.

Í vor verður áhugi kannaður á námi á 15 námsbrautum og í kjölfarið tekin ákvörðun um hvað verður í boði á haustönn. Námið fer fram með stuttum staðbundum lotum og í fjarnámi. Miðað er við að hægt sé að taka námið samhliða vinnu.

Markmið skólanna er einkum að auka framboð á framhaldsskólanám á starfssvæði skólanna og á landinu öllu með hagkvæmum hætti.