Fiskeldisbraut (FSN og VA)

Í Fjarmenntaskólanum er boðið upp á nám í fiskeldi. Námið er í umsjá Fjölbrautaskóla Snæfellinga og Verkmenntaskóla Austurlands. Námsbrautin er nú í staðfestingarferli.

Brautarlýsing

Námið er nýtt og spennandi þverfaglegt nám sem fjallar um allt frá sjávarlíffræði og tæknifræði, yfir í öflun, meðferð og úrvinnslu gagna. Námið er sett upp sem tveggja ára bóklegt nám en vinnustaðaheimsóknir og starfsnám er mikilvægur þáttur í náminu. Námið verður að hluta til kennt í fjarnámi.

Nemendur læra m.a.

  • Um helstu aðgerðir sem þarf til að sinna tæknistörfum á fiskeldisstöð
  • Um mismunandi fiska, líffræði þeirra og heilsuþáttum sem og umhverfisskilyrðum í tengslum við fiskeldi
  • Hvernig umhverfið hefur áhrif á fiskeldi og skráningu þeirra gagna sem notuð eru
  • Um fóðrun, seiðaeldi, framleiðsluáætlanir, framleiðsluferli og hagfræði
  • Hvernig á að nota þann tæknibúnað sem þarf í tengslum við vinnu á nútíma hátækni fiskeldisstöð

Fiskeldisbraut býður upp á ýmsa möguleika t.d. að hefja vinnu hjá fiskeldisfyrirtæki að loknu námi eða halda áfram námi, ljúka stúdentsprófi og fara í frekara nám í fiskeldi við háskólann á Hólum eða erlendis.