Innritun fyrir vorönn 2014 er nú hafin í Fjarmenntaskólanum. Frá því síðast var innritað hafa Menntaskólinn á Ísafirði og Fjölbrautaskóli Vesturlands bæst við þann hóp skóla sem standa að Fjarmenntaskólanum. Skipulag náms í Fjarmenntaskólanum gerir ráð fyrir því, eins og áður, að nemendur geti stundað nám með vinnu. Í boði er nám til stúdentsprófs og starfsnám. Nemendur geta valið þann skóla sem heldur utan um nám þeirra til stúdentsprófs en þó stundað nám í mörgum skólum samhliða, ef það hentar vegna námsvals og námsframboðs mismunandi skóla innan Fjarmenntaskólans.
Þrjár nýjar námsleiðir eru í boði en þær eru: Félagsliðanám, húsasmíðanám og nám á nýsköpunar og tæknibraut. Einnig er áfram innritað í , listljósmyndun, skólaliðanám, leikskólaliðanám, sjúkraliðanám og stuðningsfulltrúanám.
Sérstaklega er bent á nám í frönsku frá FVA, nám í tveimur tækninámsáföngum við FNV, listmálun við MTR og spænsku við FAS. Umsóknarfrestur á nýjum námsbrautum er almennt til er til 13. desember en framyfir áramót í það nám sem þegar er í gangi. Nánari upplýsingar eru um innritun á umsóknareyðublaði.