Nemendur hafa aðgang að náms- og starfsráðgjafa, þeir hafa samband við verkefnastjóra til að panta tíma.
Náms- og starfsráðgjafi veitir nemendum margvíslegan stuðning á meðan á námi stendur og hefur það að markmiði að skapa hverjum nemenda sem bestar aðstæður í námi. Aðstoð við áfangaval er stór þáttur í starfinu, ásamt því að veita upplýsingar um ýmis hagnýt atriði er lúta að náminu og skipulagningu þess.
Nám í fjarnámi gerir miklar kröfur til nemenda um sjálfstæði og eigið vinnuframlag. Námsráðgjafi stuðlar að auknum skilningi nemenda á eigin stöðu og möguleikum í námi og starfi og þjálfar þá til sjálfsábyrgðar. Nemendur þurfa því oft að endurskoða námsvenjur sínar og námstækni. Stuðningur náms- og starfsráðgjafa felst m.a. í að:
- skipuleggja og sjá um framkvæmd náms- og starfsfræðslu
- annast ráðgjöf um náms og starfsval
- taka þátt í að skipuleggja ýmsar aðgerðir til að stuðla að betri líðan nemenda
- að veita upplýsingar og fræðslu um nám og störf
- sinna kennslu um hagnýtar námsaðferðir
- aðstoða nemendur við að finna úrræði vegna námserfiðleika
- hjálpa nemendum að átta sig á áhugasviðum sínum
- hjálpa nemendum að finna styrkleika sína og námsstíl
