Umhverfis- og auðlindabraut
Námsbraut sem lýkur með stúdentsprófi og skilar nemendum með hæfni á 3. þrepi. Brautin er 200 einingar og meðalnámstími er 7 annir.
Inntökuskilyrði eru að nemendur hafi fengið 6 í lokaeinkunn grunnskóla í dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði, en skulu þó hafa lokið námi á 1. þrepi í þessum greinum. Nemendur geta þó byrjað á brautinni án þess en þurfa þá að taka áfanga á 1. þrepi í þeim greinum sem ekki ná lágmarkseinkunn.
Brautin byggist upp á kjarna, sérhæfingu, bundnu og frjálsu vali. Hún er hugsuð sem góður undirbúningur undir nám á háskólastigi er tengist námsgreinum á sérsviði brautarinnar og skyldum greinum en einnig lífi og starfi í lýðræðissamfélagi
Á brautinni er áhersla á grunngreinar í kjarna, sérhæfingu í umhverfis- og auðlindafræði ásamt tengdum greinum til að binda þær saman í þekkingarlega heild.
Hæfnimarkmið umhverfis- og auðlindabrautar eru:
Að nemendur:
- hafi góða almenna þekkingu á sviði auðlindanýtingar og umhverfisverndar
- séu meðvitaðir um umhverfi sitt, hafi lært að njóta þess, virða það og nýta á skynsamlegan hátt
- geti fjallað um og tekið þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál er tengjast samspili umhverfis, náttúru og auðlindanýtingar
- séu færir um að beita fræðilegri hugsun og aðferðum við öflun upplýsinga, greiningu
- viðfangsefna, mat, úrvinnslu og túlkun
- geti tekið þátt í rökræðu sem tengist umhverfi og auðlindum
- séu vel undirbúnir til frekara náms á háskólastigi
- séu vel undirbúnir til frekara náms og starfa
Sérstaða námsbrautarinnar:
- Boðið er upp á heildstætt fjarnám til stúdentsprófs
- Fjórir framhaldsskólar hafa samstarf um þróun og rekstur námsbrautar
- Samtenging náms í umhverfis og auðlindafræði til stúdentsprófs
- Skólarnir þróa samstarfsvettvang á netinu fyrir nemendur og kennara.
| Kjarni | 1. þrep | 2. þrep | 3. þrep | Einingar |
| Íslenska | 10 | 10 | 20 | |
| Danska | 5 | 5 | ||
| Enska | 10 | 5 | 15 | |
| Stærðfræði | 10 | 10 | ||
| Lýðheilsa / lífsstíll / frumkvæði | 10 | 10 | ||
| 3. mál | 10 | 10 | ||
| Náttúruvísindi | 5 | 5 | ||
| Félagsvísindi | 5 | 5 | ||
| Listir | 5 | 5 | ||
| Heimspeki/Saga | 5 | 5 | ||
| Samtals | 35 | 40 | 15 | 90 |
| Brautarkjarni | ||||
| Auðlindafræði | 5 | 5 | 10 | |
| Umhverfisfræði | 5 | 5 | 10 | |
| Vistfræði | 5 | 5 | ||
| Landafræði | 5 | 5 | ||
| Hagfræði | 5 | 5 | ||
| Samþætt verkefni og lokaverkefni | 5 | 10 | 15 | |
| Samtals | 30 | 20 | 50 | |
| Bundið val | ||||
| Auðlindafræði, umhverfisfræði, vistfræði, landafræði, hagfræði eða aðrar greinar sem skólinn samþykkir. | 10 | 10 | 20 | |
| Frjálst val | 40 | |||
| Alls: | 200 | |||
Nemendur þurfa að gæta þess að halda einingafjölda á hverju þrepi innan þeirra marka um hlutfall eininga á þrepi sem aðalnámskrá framhaldsskóla segir til um.
| Hlutfall eininga á þrepi | K | BK | BV | FV | Alls |
| 1. þrep 33-67 | 35 | 0 | 0 | 35 | |
| 2. þrep 67-100 | 40 | 30 | 10 | 80 | |
| 3. þrep 33-67 | 15 | 20 | 10 | 45 | |
| Alls | 90 | 50 | 20 | 40 | 200 |
Nemendur eru hvattir til þess að skoða vel inngönguskilyrði í það nám sem þeir óska að stunda að loknu stúdentsprófi til að geta nýtt valið sitt til að uppfylla þau.
Þegar talað er um einingar er átt við nýja skilgreiningu á einingum samkvæmt nýjum lögum um framhaldsskóla (nr. 92/2008).
